Beta

Dreyfbílistúttan

07.11.2007 22:39:49 / betarut

komin heim og ný bloggsíða

Jæja. Mér datt svona í hug að láta ykkur vita að ég er komin heim frá danmörku:haha:

Vísað í botni, ég 3 kílóum þyngri og einnig komin með nýja bloggsíðu.

Mér hefur aldrey líkað neitt séstaklega vel við þetta þar sem að það gengur alltaf eikkað brösulega að setja inn myndir á þetta dótarí. Þannig að nú prufa ég 123.

Nýja slóðin á síðuna mína er www.123.is/betarut Endilega kíkiði og þar er ég líka búin að setja inn myndir. Bara djammmyndir af því að ég er búin að vera svo hrikalega dugleg í djamminu núna uppá síðkastið:)

sjáumst

Beta


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 20:01:08 / betarut

Verslað og verslað pínulíð meyra:)

Héðan er allt það besta að frétta. Ég held áfram að belgja mig út af köldum grænum í gleri. Næ því af mér bara þegar ég kem heim. En ekki hvað......

Í lególandi var algjört ÆÐI. Bæði fullornir sem börn skemmtu sér eins og best verður á kosið. Ég fer þangað aftur. Það er alveg pottþétt.

Í gær og í dag var farið örlítið að versla. Jájá. Bara örlítið segi ég 8|  hehehe !!!

Í dag fórum við í H&M í Horsens og þar eyddum við eins og 4 klukkutímum í að skoða,snerta og svo borga...... !!   :)

Í dag fékk ég þær fréttir að jafnaldra stelpnanna hún Védís Edda væri dáin. Maður er búin að vita í langan tíma að líf hennar yrði aldrey langt, en þrátt fyrir það er maður aldrey tilbúin þegar maður fær svona fréttir. Ég votta Pétri, Birnu,Agnesi, Sigga og allri hennar fjölskyldu mína dýpstu samúð.

Læt þetta gott heita í bili. Kem með betri ferðasögu þegar ég kem heim.

Lettarnir eru á sínum stað enþá. Bara horfa...ekki snerta!!!!!!!:haha:

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 20:44:56 / betarut

Hér er ég...hér er ég...

Gott kvöld góðir hálsar.

Gott veður í danmörkinni og hér er ljúft að vera. Sólin lætur örlítið sjá sig, bjórinn alltaf jafn kaldur og ungir, myndarlegir Lettar í næsta húsi.... ....:haha:

Við fórum í dýragarð í dag og sáum apa,gíraffa, nashyrninga og ljón!!! Ég komst í návígi við eina nokkuð tignarlega ljónynju þegar við keyrðum í gegnum garðinn á bílnum okkar. Örlítill hrollur sem fór um mann....

Vorum svo að koma úr svaka kvöldkaffi núna. Hún Þórunn bauð okkur í afmæliskaffi til sín þar sem að daman er kvorki meira né minna en 31 árs gömul. Til lukku með daginn í dag Þórunn.:D

Svo er það lególand á morgun. Það verður spennandi :)

Knús og kram úr danmörkinni....


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 22:24:46 / betarut

Farin til danmerkur...

Jámm það held ég nú. Þar sem ég er nú rétt nýskriðin heim af þjóðhátíð fanst mér rétt að skella mér til danmerkur í svona eins og eina viku.

Fer á morgun. Ég mamma, Rúnar og Simmi. Verðum hjá henni ofur frænku minni, öðru nafni Daddý.:haha:

Læt vita af mér við fyrsta tækifæri. :haha:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 09:41:48 / betarut

Á Þjóðhátíð ég fer, fer , fer !!!

Nú er ég rétt ófarin á Bakkann. Og það segir mér að það er komin föstudagur og þjóðhátíðin rétt að byrja. :haha:

Sjáumst í dalnum á Sunnudaginn !!!  Þið takið þetta til ykkar sem eiga það. PUNKTUR  :haha::haha::haha::haha: 


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 23:30:28 / betarut

Komið á hreint.

Þá er það komið á hreint. Ég og börnin förum til eyja á föstudagsmorgun ef veður leyfir.  Við ætlum að vera hjá Lilju og Óla á Ásaveginum og ég ætla svo að skella mér inní dal á sunnudeginum. Ég er að vona að Á & H láti sjá sig líka. :haha:  Það yrði geggjað. Þið reynið að koma. Spáin er fín :D

Svo fer sumarfríinu að ljúka. ég byrja að vinna aftur á þriðjudaginn á JR. Börnin byrja þá á leikskólanum líka og allt ætti að falla í sömu rútínuna og fyrir sumarfrí.

En jæja. Vonandi hafið þið það gott um helgina og njótið þess sem landinn hefur uppá að bjóða. Farið varlega og lifið heil.

Beta


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 09:37:55 / betarut

Merkilegt þetta.

  Merkilegt   
Þetta fann ég,og þetter smá pæling:

Tvær siðferðislegar spurningar:
Spurning 1:
Ef þú vissir af óléttri konu sem ætti 8 börn fyrir. Þrjú þeirra eru heyrnarlaus, tvö blind, eitt er fatlað og það þriðja er með sýfilis; Myndirðu mæla með því a hún færi í fóstureyðingu eða myndirðu ráðleggja henni að eiga barnið?

Lestu næstu spurningu áður en þú skrollar niður og kíkir á svarið við þessari.

Spurning 2:
Segjum að nú væri alþjóðakosning og kjósa ætti nýjanleiðtoga heimsins. Þitt atkvæði myndi skipta sköpum í kosningunni og þrír aðilar eru í framboði.
Hér koma staðreyndir um þessa þrjá aðila:

Frambjóðandi A:
Er í samkurli við spillta stjórnmálamenn og ráðfærir sig við stjöörnufræðinga. Hann hefur átt tvær hjákonur, hann keðjureykir og drekkur 10 martini drykki á dag.

Frambjóðandi B:
Hefur verið rekinn úr starfi tvisvar,. sefur til hádegis. Notaði ópíum í framhaldsskóla og drekkur hálfa viskýflösku á hverju kvöldi.

Frambjóðandi C:
Hann er verðlaunuð stríðshetja og grænmetiræta. Hann reykir ekki, fær sér bjór stöku sinnum og hefur aldrei staðið í framhjáhaldi.















Hvern af þessum frambjóðendum myndirðu kjósa?
-Frambjóðandi A er Franklin D. Roosevelt

-Frambjóðandi B er Winston Churchill

-Frambjóðandi C er Adolf Hitler

Og ef þú ert að velta fyrir þér að senda konuna úr spurningu eitt í fóstureyðingu þá varstu að drepa Ludwig Van Beethoven.

Áhugavert ekki satt. Fær mann til að hugsa um að vera ekki of dómharður á fólk.
Munið það; það voru óreyndir byrjendur sem byggðu Örkina hans Nóa en atvinnumenn sem smíðuðu Titanic



» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 15:19:47 / betarut

Fiðringurinn..

Sumarið heldur áfram. Nú í vikunni þótti mér nú reyndar kominn tími til að setjast út á nýja fína blettinn minn. Ég átti líka þessa fínu garðstóla inní bílskúr sem ég gróf uppúr drasli og smellti út á miðjan blett. Ætli við Árný höfum ekki náð að sitja í þeim í eins og 10 mínútur áðuren það dró fyrir sólu og ekki til hennar sést síðan. 8)

Þjóðhátíðin er á næsta leiti og verð ég að viðurkenna að hún togar fast í mig þetta árið. Barnapössun er ekki vandamálið þar sem að auka amman og afinn úr eyjum vilja ólm fá að passa börnin. Og kanski að sjá mig svona örlítið í leiðinni:D Kanski læt ég það bara eftir þeim og kíki með liðið til eyja. Þá gæti ég kíkt í dalinn á sunnudeginum. 8|8|

Það er búið að vera gestkvæmt um helgina í kotinu. GB frændi kíkti á föstudaginn, Kolla mætti galvösk um kaffileytið á laugardeginum og svo fengum við einn lítinn nokkurra mánaða í heimsókn til okkar í 2 tíma á laugardagskvöldið. Það var hann Mattías litli hennar Ernu og Helga. Hann var bara eins og ljós enda vorum við stelpurnar svolítið að dekra við litla karlmanninn. 

Þegar hann var farinn fóru litlu skvísurnar að sofa og við sátum langt frammá nótt og spjölluðum og spölluðum. Það var svo gaman hjá okkur og mikið hlegið og grátið (grátið úr hlátri sko!!!!)  Svo þegar líða tók á nóttina var ungur herramaður sem stóð fyrir utan hálf áttavilltur og húsnæðislaus. Við getum nú sagt að hann hafi ekki verið í sínu besta ástandi en þó í ástandi til að koma yfir sig húsaskjóli. Gott með hann bara  :) En þessi ungi drengur var svo heppinn að eiga góða systur sem bjó um hann í sófanum. Svo var hann líka svo heppinn að fá að sofa með sængurver yfir sér. Húsmóðirin á heimilinu þóttist vera að nota rúmteppið sitt.....:haha:  Svo var dengurinn sóttur í morgun og leiddur útí bíl af foreldrum sínum og brunað með hann heim á selfoss. híhí. Við nefnum engin nöfn en þetta var afskaplega fyndið allt saman. :haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 21:55:14 / betarut

Ónefnd færsla

Margt búið að drífa á daga mína síðan bloggað var seinast.

Fór í brúðkaup í eyjum þann 7 júlí. Þar voru þau María Sif og Sæmundur gefin saman við fallega athöfn í Landakirkju. Veislan var síðan haldin í Alþýðuhúsinu og heppnaðist hún einstaklega vel.

Ég var Barnlaus í heila 10 daga núna í júlí og voru börnin öll hjá pabba sínum í góðu yfirlæti. Það var ýmislegt gert af sér á meðan börnin voru í eyjum og stendur það einna helst uppúr að brjóta niður eitt stikki millivegg framm á nótt. Djöfull var það mikil útrás og gaman. Kúbeinið og sleggjuna á þetta bara....

Svo er ég að sjálfsögðu búin að gera mikið og margt með sambýlingnum mínum henni Árný.  Búnar að kíkja alveg 2 á djammið í rvk. Bjóða fólki í mat og með því, fara í bíltúra, í bíó,labbitúra og bara sitja heima á kvöldin og deilt með okkur hinum ýmsa fróðleik.

Jæja. ég má ekki láta líða svona langt á milli blogga.  


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 00:14:31 / betarut

Bæjarferð

Það er ekki annað hægt en að skemmta sér mikið vel þegar maður er á för með þeim Árný og Heiðu.

Við semsagt fórum í trukkalessuferð til reykjavíkur á föstudaginn og skelltum okkur út að borða og á ball. Við skemmtum okkur mikið vel ásamt fullt af rangæingum sem staddir voru á sveitaballi á gauknum.

\

 

\

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 23:50:49 / betarut

Gæsun og kvennahlaup

Hæ og hó.

Gæsunin var geggjuð. María Sif fór á kostum og leysti hin ýmsu verkefni sem henni voru falin að leysa  :D Þar á meðal stjórnaði hún pallapúltíma í hreyfingu í svanabúningnum, spændi um á hlópahjóli í kringlunni og smáralindinni, bakaði pönnukökur fyrir sæma, stoppaði í sokka fyrir tengdó ásamt því að sauma tölu á skyrtu líka. Fór létt með þetta allt saman. Svo var farið á Bakka og til eyja. :)

Þar biðu 3 mótorhjólagæjar eftir henni og hún var klædd í motorhjóladress og var skellt aftaná eitt hjólið og það var rúntað með hana um bæjinn. Svo var hún klædd upp í blautbúning og við fórum með hana á tuðru. Þar var hún svo sett í fallhlíf og dregin á eftir tuðrunni. Svífandi í háloftunum. Það var geggjað að sjá hana þarna svona hátt uppi. :haha: Algjör hetja bara. :!:

En svo fórum við nú allar heim í sturtu og svo fórum við út að borða á cafe María.  Þar átum við á okkur gat og fórum svo í partý heim til Elínar. Svo var farið á Lundann og djammað til 5 :)

Ég ætla að reyna að setja inn myndir við tækifæri. Bara eikkurtíman svona þegar ég nenni.

En þess má líka geta að við mæðgurnar skunduðum í kvennahlaupið í morgun og hristum okkur eina 3 kílómetra eða svo. Hressandi:haha:

Svo er það hún Heiða. Til lukku með útskiftardaginn í dag elskan mín.

Eigum við ekki að segja þetta gott í bili bara.


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 12:26:26 / betarut

helgin

Sælt veri fólkið.

Ég var á ættarmóti í gær. Það var nokkuð gaman. Nema ég er ekki alveg inní ættfræðinni svo ég þekkti ekki helminginn af þessu liði. En gaman samt að sjá þessi andlit sem talin eru vera ættmenni mín. :D Svo er aðalkvöldið í kvöld sem ég kemst ekki einusinni á. Ég er nefnilega að fara að gæsa hana Maríu Sif tilvonandi brúður. Þær byrjuðu í morgun með hana í sprikli og fjöri í hreyfingu og svo eru þær með hana á einhverju skralli um borgina núna. Þær ætla svo að koma og pikka mig upp á eftir og við ætlum að láta gæsina gera einhvern skandal af sér hérna á suðurlandinu.:!:  Ég er bara farin að hlakka til :)

Glæsileg tilvonandi brúðhjón. María Sif og Sæmundur. Stóri dagurinn er 07.07.07

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 12:21:48 / betarut

fúlt

Eiki rauði og hans fólk gerði góða hluti í gær.  Þetta var flott hjá þeim. En austur evrópan stendur saman og við eigum enga samleið með því ágæta fólki.

Ekkert bólar á steina stein sem ætlaði að töfra framm einn ágætis garð fyrir utan heimili mitt.

Eruði búin að klippa hjá ykkur tréin gott fólk. ?? Mig vantar að koma til nokkrum góðum græðlingum af mispil?? Ég veit að Kristín Hrefna er með fínann mispil í garðinum hjá sér. Ertu búin að klippa hjá þér Kristín ??:haha:

Annars er helgi frammundan. Mig langar að djamma. :$


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 23:38:10 / betarut

ókeyj...

Mér fínst hann faðir minn bara svo rosalega fallegur að hann á það bara alveg skilið að vera á toppnum þetta lengi. 8|

En ókeyj. Ykkur þyrstir í fréttir af bombunni. Og hér koma þær.....

Börnin mín þjást þessa dagana af veiki er nefnist gin og klaufaveikin.... Við erum því búin að vera heima í einangrun síðan á fimmtudag því þessi veiki er bráðsmitandi. Sigmar Valur er búin að vera mjög slæmur af útbrotum í munni og hefur ekki borðað neitt né drukkið í einn og hálfan sólarhring... hann hefur líka lítið talað því honum verður bara illt í munninum við það. Greyið karlmaðurinn minn á voða bágt núna. :(

En svo er bara kominn sumarhugur í mann. Ég á von á honum Steina stein í heimsókn seinnipart í næstu viku til að laga til hjá mér garðinn og þökuleggja hjá mér. Svo þarf maður að planta einhverjum trjám svo þetta fari nú að líta sæmilega út.

jæja. svo fer að stittast í júró. Spennandi...

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 10:45:52 / betarut

Fallegur dagur í dag.

Hæ hó.

Það er fallegur dagur í dag. Og í dag á hann fallegi pabbi minn stórafmæli.:D Hann er hvorki meira né minna en 50 ára gamall. Við ætlum að fara í bíltúr á eftir og enda á því að fá okkur einhverstaðar að borða. Á fínum stað.:haha:

Til hamingju með daginn í dag pabbi minn  !!!!!!!

 

 

Hann Gilli frændi krakkanna á líka afmæli í dag. En hann er 20 ára. Til lukku með daginn Gilli.:haha:

En svona fyrst við erum byrjuð á afmæliskveðjunum vil ég líka óska fyrrverandi fosseta okkar,Vigdísi Finnbogadóttur til hamingju með afmælið í dag.:haha::haha:

Ekki var það fleyra í bili frá okkur


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3